Lagalegar tillkynningar
Gera bókun á þessari síðuGera bókun á þessari síðu
Notendasamningur fyrir vefsíðu Budget-AlmenntNotendasamningur fyrir vefsíðu Budget-Almennt
Verndun gagnaVerndun gagna
Réttur eigandaRéttur eiganda
Ásættanlegt notkunÁsættanlegt notkun
Breytingar á þessum vefBreytingar á þessum vef
Tenglar á aðrar vefsíðurTenglar á aðrar vefsíður
Takmörkun ábyrgðarTakmörkun ábyrgðar
Afsölun ÁbyrgðarAfsölun Ábyrgðar
IndemnificationIndemnification
ÝmislegtÝmislegt
Notkun á bókunumNotkun á bókunum
NetfangNetfang
No representationNo representation
ÖryggiÖryggi

Notendasamningur fyrir vefsíðu Budget

Gera bókun á þessari síðu
Bókun (staðfest eða ekki) gildir ekki sem samningur um afhendingu á bílaleigubíl. Samningur verður gerður við upphaf leigu og mun hann falla undir gildandi lög í leigulandi.



Notendasamningur fyrir vefsíðu Budget
Almennt

Þetta vefsvæði ásamt meðfylgjandi bókunarsvæði (saman nefnt Vefurinn) er eign og rekið af Zodiac Europe Limited, sem starfar undir nafninu Budget RentaCar, til heimilis við Park Road, Bracknell Berkshire RG122EW Stóra Bretland. Til hægðarauka vegna notendaskilmála og reglna þá þýða hugtökin, VIÐ-OKKAR-og OKKUR að átt sé við Budget. Þar sem þú með þínu samþykki ert notandi þessarrar vefsíðu þá samþykkir þú þá skilmála og reglur sem vefsíða þessi byggir á.
Ef þú ert ekki samþykkur þeim reglum og skilmálum, sem við eiga hefur þú ekki leyfi til að nota þessa vefsíðu..



Upplýsingavernd

Allar upplýsingar um einkahagi sem þú lætur okkur í té við notkun þessa vefs verða notaðar í samræmi við reglur okkar um persónuvernd.



Notkun á bókunarsvæði

Bókunarmöguleikum á þessum vef er eingöngu ætlað það hlutverk að gera þér kleift með löglegum hætti að getað pantað þjónustu fyrir þig og þá sem með þér ferðast. Þú átt ekki að gera neinar áhættu -eða gervipantanir. Misnotkun á þessum möguleika gæti meðal annars valdið því að þú missir allan aðgang að honum



Vernd hugtaka

Öll vörumerki, einkaleyfi, rétt á gagnagrunnsnotkun og önnur eign á hugverki og efnis á þessum vef (svo og uppsetning, hönnun og skipulag vefsins) auk þess hugbúnaðar sem liggur til grundvallar eru annað hvort bein eign okkar eða einkaleyfishafa okkar. Þú mátt ekki fjölfalda,breyta, aðlaga, birta, útvarpa, dreifa, selja eða láta af hendi neitt efni á þessum vef né úr þeim hugbúnaði sem liggur til grundvallar honum, hvorki að öllu leyti eða að hluta nema með skriflegu leyfi okkar. Þó mátt þú hlaða niður efni af vefsíðunni og prenta það eða afrita til persónulegrar notkunar, en ekki í viðskiptaskyni.



Leyfileg notkun

Þú mátt aðeins nota þetta vefsvæði í samræmi við áðurnefnda skilmála og skilyrði, og þá aðeins vegna löglegrar starfsemi sem felur í sér að farið sé að öllum tilheyrandi lögum og reglugerðum sem eru við lýði innan Stóra Bretlands eða á öðru lagalegu yfirráðasvæði þaðan sem þú ferð inn á þetta vefsvæði.

Sérstaklega samþykkir þú að ekki:

· setja inn eða dreifa hvers kyns upplýsingum á eða í gegnum þessu vefsvæði sem gæti skaðað, sé blygðunarlaust, niðurlægjandi eða á annan hátt ólöglegt;
· nota þetta vefsvæði með þeim hætti að það veldur eða getur valdið innrás á rétt annars aðila;
· gera aðra óleyfilega gervi -eða svindlbókun ;
· nota einhvern hugbúnað, starfshátt eða tæki til að trufla eða að reyna að trufla með rafrænum eða handvirkum hætti starfsemi eða virkni þessa vefsvæðis þarmeð talið, en ekki takmarkað við, að setja inn skjöl sem innihalda vírusa eða eru skemmd með öðrum hætti;
· breyta uppsetningu, umbreyta eða trufla með einhverjum hætti upphafsútliti og heildartilfinningu þessa vefsvæðis eða þess hugbúnaðar sem það byggir á;
· framkvæma aðgerð, sem veldur óeðlilega miklu álagi á þetta vefsvæði eða tengda stoðbyggingu;
· komast inn eða að reyna að komast með óleyfilegum hætti inn á einhver af okkar vefsvæði með hvers konar aðferðum;
· Að nota bókunarsvæði okkar með þeim hætti að það truflar aðgengi annarra notenda;

Án þess að gera upp á milli annarra réttinda okkar (lagalegra eða annarrra) þá áskiljum við okkur rétt á að:
· stöðva bókanir þínar án tilvísunar til þín; og/eða
· neita þér um aðgang að þessu vefsvæði þar sem við höldum (algerlega á okkar einsdæmi) að þú hefur ekki farið að okkar skilmálum og skilyrðum.





Breytingar á vef þessum

Við gætum gert breytingar eða endurbætur á upplýsingum, þjónustu, vöru eða öðru efni á þessu vefsvæði eða að loka því hvenær sem er án nánari tilkynningar. Við gætum einnig breytt skilmálum og reglum hvenær sem er og slíkar breytingar skulu taka gildi um leið og þessar breytingar hafa verið tilkynntar á þessu vefsvæði. Þessvegna er áframhaldandi notkun og aðgangur þinn að þessu vefsvæði álitinn vera samþykki þitt að breyttum skilyrðum og skilmálum.



Tengingar við önnur vefsvæði

Hugsanlega eru á þessum vef tengingar við önnur vefsvæði. Við stöndum ekki að neinum slíkum vefsvæðum og við erum ekki ábyrg fyrir neinum upplýsingum, efni, vörum -og eða þjónustu sem eru á og hægt að nálgast á slíkum vefsvæðum. Tenging þín við og notkun á slíkum vefsvæðum er algerlega á þína eigin ábyrgð.



Tölvupóstur sendur á vefnum (netinu)

Aldrei er hægt að fyllilega ábyrgjast öryggi skilaboða, sem eru send í gegnum Internetið, þar sem hægt er að lesa þau í umferð, tapa þeim út eða að þau munu skemmast - spillast (breytast) í meðförum. Við getum því ekki verið ábyrg fyrir nákvæmni innihalds skilaboða, sem send eru sem vefpóstur á internetinu hvort sem er frá okkur til þín eða frá þér til okkar.


Ekki innan rammans

Við getum ekki lofað né haldið því fram að notkun þín á vefnum verði óhindruð eða hnökralaus eða að einhverjar upplýsingar, innihald, hugbúnaður eða annað efni sem nálgast má á þessu vefsvæði verði laust við vírusa og annað slíkt s.s orma, Troju hesta eða annað skaðlegt aðskotaefni.



Öryggi

Við munum með öllum hæfilegum ráðum tryggja að upplýsingar sem þú sendir í gegnum bókunarhluta þessa vefsvæðis munu haldast í trúnaði og vera verndaðar frá óleyfilegum aðgangi en við getum ekki ábyrgst ólöglega innkomu og munum ekki bera ábyrgð á einhverri óleyfilegri innkomu með neinum hætti að slíkum upplýsingum.



Takmörkun ábyrgðar

Við munum ekki undir neinum kringumstæðum vera ábyrg fyrir með beinum eða óbeinum hætti, einhverjum sérstöku, eða glæpsamlegu, hugsanlegu eða tilviljunarlegu tapi eða skemmdum né hverskonar skaða, sem munu geta átt sé stað vegna aðgangs eða notkunar þinnar á þessu vefsvæði eða frá aðgangi þínum að tengdum svæðum eins og lýst er hér að ofan, svo og hagnaðartaps og þessháttar hvort sem það er áformað í samráði við hlutaðeigandi aðila eða grundvallað á samningsbroti (einnig vegna vanrækslu) vöru/þjónustuábyrgðar eða annað af þeim toga jafnvel þegar mönnum hafa verið kynntir möguleikarnir á slíkum skaða.
Ekkert í þessum skilmálum og skilyrðum skal draga úr eða takmarka ábyrgð okkar í sambandi við dauða eða persónulegan skaða vegna vanrækslu eða vegna þess að sviksamlega hefur verið villt á sér heimildum.



Riftunarákvæði á ábyrgð

Upplýsingar, þjónusta og efni sem eru á þessu vefsvæði geta verið tæknilega ónákvæmar eða með innsláttarvillum. Með jöfnu millibili eru og gerðar breytingar á upplýsingum á vefsvæðinu.
Við getum gert endurbætur og eða breytingar á þessu vefsvæði hvenær sem er.

Við gefum ekkert út um hæfi þeirra upplýsinga, þjónustu og efni sem eru á þessu vefsvæði til eins eða neins. Allar slíkar upplýsingar, vörur og þjónusta eru fram boðin "eins og þær eru" án neinnar ábyrgðar. Við göngum eins langt og lög leyfa í því að afneita allri ábyrgð og skilyrðum sem tengjast upplýsingum, þjónustu og efni og þar með talið huglægar ábyrgðir og sölulegar aðstæður, hvort það sé sniðið að ákveðnum tilgangi, titli og hugsanlegu lögbroti.



Ábyrgðir - skaðabætur

Þú samþykkir að ábyrgjast, vernda okkur og halda okkur utan við allan skaða og kröfur og útgjöld (einnig hæfilegan lögfræðikostnað) sem varða brot þitt á þessum skilmálum og skilyrðum.




Ýmislegt

Í Þessum skilmálum og reglum eru að finna alla skilmála í samkomulagi þínu við okkur varðandi notkun þína á þessu vefsvæði. Ekkert annað skrifað eða munnlegt samkomulag (né framsetningar í einhverju auglýsingariti eða kynningarefni gefið út af okur) eru tekin með.

Notkun þín á þessu vefsvæði, allt niðurhal frá því og starfsemi þessa skilyrða og skilmála eiga að vera samkvæmt lögum Stóra Bretlands og þú samþykkir að fara eftir lögsögu breskra eða annarra dómstóla.



© Budget